Skjal þýðingastofa

Þýðingastofan Skjal er eitt öflugasta fyrirtækið á Íslandi á sviði þýðinga, prófarkalesturs og textagerðar. Skjal hefur um árabil haft það eitt að markmiði að þjóna viðskiptavinum sínum með eins liprum hætti og hugsast getur. Sú sérstaða sem Skjal hefur skapað sér, með því að sérsníða starfsemi sína að fjölbreytilegum þörfum samstarfsaðila, á sér fáar hliðstæður hérlendis.

Meginþorri verkefna Skjals er helgaður þýðingum úr og á 13 Evróputungumál. Liggja þau ýmist á sviði þýðinga viðskiptagagna fyrirtækja, löggiltra skjalaþýðinga eða efnis tæknilegs eða almenns eðlis.

Starfsmenn Skjals eru fagmenn, sem hafa með náinni samvinnu við samstarfsaðila sína öðlast þekkingu og vald á orðfæri og hugtakaforða á flestum sviðum atvinnu- og viðskiptalífsins. Með því að gera utanaðkomandi texta að sinni sérgrein getur Skjal tryggt að texti viðskiptavina verði ávallt markviss og í takt við ímynd og stefnu hvers og eins.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband